Alhliða þjónusta við byggingarframkvæmdir
Múr og Mál býður viðskiptavinum um land allt fjölbreytta þjónustu á sviði byggingarframkvæmda, allt frá nýbyggingum til endurbóta, viðhalds og sérhæfðra verkefna í byggingariðnaði. Hjá okkur starfar fólk úr mörgum iðngreinum. Við getum því bæði tekið að okkur afmörkuð verkefni sem og framkvæmdir þar sem fagfólk úr ólíkum greinum þarf að vinna saman.
Nýbyggingar
Múr og Mál hefur reist byggingar af ólíkum stærðum og gerðum um land allt.
Við búum yfir fagþekkingunni sem þarf til að fylgja verkefni allt frá fyrstu stigum til fullbúinnar byggingar. Hjá okkur starfar fagfólk úr mörgum iðngreinum og fyrir vikið getum við samræmt vinnuna á skilvirkan hátt og haft gæði að leiðarljósi á öllum stigum verksins.
Endurbætur og endurnýjun
Við tökum að okkur heildstæðar endurbætur og endurnýjun íbúðarhúsnæðis, atvinnuhúsnæðis og opinberra bygginga.
Fjölbreytt sérþekking innan fyrirtækisins gerir okkur kleift að samræma ólíka verkþætti í eina heild. Hvort sem verkefnið snýst um viðgerðir á burðarvirki, yfirborðsvinnu, trésmíði, gólf, útveggi eða lokafrágang þá leggjum við áherslu á endingargóðar lausnir.
Viðgerðir og viðhald
Reglulegt viðhald og viðgerðir geta lengt líftíma bygginga verulega.
Við sinnum fjölbreyttum viðhalds- og viðgerðarverkefnum; meðal annars þakviðgerðum, endurnýjun utanhússklæðninga og glers, múrviðgerðum og öðrum endurbótum á byggingum. Við getum bæði sinnt einstökum viðgerðum og boðið heildstæðari lausn þegar húsnæðið þarfnast viðameira viðhalds.
Trésmíði og byggingarvinna
Öflugir smiðir leika lykilþátt í starfsemi Múr og mál.
Hjá okkur starfa reynslumiklir húsasmíðameistarar og því getum við annast trésmíði og smíði burðarvirkja við nýbyggingar, endurbætur og viðhald. This helps extend the lifespan of structures and avoid larger issues.
Múrverk og steypuvinna
Múrverk hefur frá upphafi verið eitt af aðalsmerkjum okkar.
Við tökum að okkur múrverk, veggjagerð, viðgerðir og tengda yfirborðsvinnu í nýjum og eldri byggingum. Reynsla múrarameistara okkar og vönduð vinnubrögð, ásamt nútímalegum byggingaraðferðum, skila traustum og endingargóðum lausnum.
Gólflagnir og yfirborðsvinna
Við önnumst gólflagnir og undirbúning yfirborðs við endurbætur og nýbyggingar.
Þjónustan felur meðal annars í sér undirbúning og jöfnun undirlags ásamt parketlögn. Þannig sjáum við til þess að undirlag og gólfefni myndi eina, vandaða heild.
Málun og frágangur
Reynslumiklir málarar sinna málun innan húss og utan, hvort sem um er að ræða nýbyggingar, endurbætur eða viðhald.
Vandaður undirbúningur og fagleg vinnubrögð leggja ekki aðeins grunn að fallegu útliti heldur tryggir einnig endingu um ókomin ár.
Byrjaðu á að heyra í okkur
Hvort sem um er að ræða eitt sérhæft verk eða heildstæðar byggingarframkvæmdir höfum við reynsluna og fagþekkinguna til að finna réttu lausnina.