Allt frá nýbyggingum til endurbóta og viðhalds

Traustur samstarfsaðili um land allt.

Í rúmlega 40 ár hefur Múr- og Málningarþjónustan Höfn ehf. annast nýbyggingar, endurbætur, viðgerðir og viðhald fyrir einstaklinga, fyrirtæki og opinbera aðila.

Hvort sem við reisum hús frá grunni eða lengjum líftíma eldri bygginga leggjum við áherslu á markvissa verkefnastjórnun og vönduð vinnubrögð.

Verkefni

Byggingar um land allt

Í áratugi hefur okkur verið treyst fyrir krefjandi framkvæmdum um land allt.

Við höfum unnið að verkefnum af ýmsum toga fyrir fjölbreyttan hóp viðskiptavina. Hvort sem um er að ræða einstaklinga eða opinberar stofnanir, íbúð eða atvinnuhúsnæði, þá getum við aðstoðað.

Áherslurnar eru alltaf þær sömu, sama hvert verkefnið er: faglegur undirbúningur, áreiðanleg framkvæmd og gæði sem standast væntingar viðskiptavina okkar.

Um okkur

Múr- og Málningarþjónustunni Höfn ehf. hefur verið treyst fyrir framkvæmdum frá árinu 1982.
Í gegnum árin hefur fyrirtækið þróast úr sérhæfðu verktakafyrirtæki í alhliða byggingafyrirtæki sem getur stýrt framkvæmdum þvert á iðngreinar. Í dag starfa hjá okkur fagmenn í byggingariðnaði, löggiltir byggingarstjórar og reynslumiklir iðnaðarmenn.

Þessi fjölbreytta sérþekking er einn helsti styrkleikinn okkar. Hún gerir okkur kleift að samræma flókin verkefni og tryggja gæði. Þannig getur Múr og Mál séð um allt verkið, frá upphafi til enda.

Af hverju að velja okkur

Einn samstarfsaðili með fjölbreytta þekkingu

Hvort sem reisa á nýtt hús, gera upp eldra húsnæði eða sinna sérhæfðum viðgerðum höfum við sömu atriði að leiðarljósi:

Faglega verkefnastjórnun.
Reynslumikla iðnaðarmenn.
Skýr samskipti.
Áreiðanlegar tíma- og kostnaðaráætlanir.
Öflugt gæðaeftirlit.

Við vinnum eftir virku gæðastjórnunarkerfi, búum að reynslumiklu fagfólki og leggjum ríka áherslu á verkefnastjórnun sem þú getur treyst.

Bæklingur

Við erum stolt af vinnu okkar og stöndum á bak við hvert verkefni sem við afhendum. Skoðaðu bæklinginn okkar til að fá nánari sýn á verkefnin okkar og hvað við getum boðið þér.

This site is registered on wpml.org as a development site. Switch to a production site key to remove this banner.